12.10.2011 | 23:05
Góður þáttur um Gunnar í Ísþjóðinni á RÚV
Þættir Ragnhildar Steinunnar, Ísþjóðin, hafa vakið talsverða athygli en þetta er þáttaröð um ungt og áhugavert fólk sem skarar fram úr á hinum ýmsu sviðum. Þættirnir hafa verið hver öðrum betri en fimmtudaginn 22. september sl. var þáttur um Gunnar. Hér er þátturinn.
Íþróttir | Breytt 19.10.2011 kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2011 | 21:47
Flott frammistaða á ADCC 2011
Gunnar stóð sig afar vel á ADCC mótinu sem fram fór í Nottingham á Englandi 24.-25. september síðastliðinn. Hann sigraði m.a. Marko Helen núverandi og tvöfaldan Evrópumeistara og margfaldan Finnlandsmeistara. Gunnar sótti stíft alla glímuna sem þó fór í tvöfalda framlengingu og endaði með nokkuð öruggum sigri Gunnars á stigum. Þá sigraði Gunnar einnig hinn brasílíska Bruno Frazzato sem er bæði núverandi Ameríkumeistari og Brasilíumeistari. Bruno er reyndar fjórfaldur Braslilíumeistari í sínum þyngdarflokki og heimsmeistari frá 2007. Gunnar hafði talsverða yfirburði í glímunni við Bruno og sótti stíft á hann en sigraði á stigum að lokum. Hvorki Marko né Bruno skoruðu nein stig á Gunnar né voru nálægt því. Í -88kg flokknum féll Gunnar naumlega út fyrir Andre Galvao sem bæði sigraði þyngdarflokkinn og opna flokkinn og var maður mótsins. Andre skoraði stig á Gunnar þegar aðeins um 20 sekúndur voru eftir af glímunni. Gunnar tapaði einnig með minnsta mögulega stigamun fyrir sjálfum Alexandre “Xande” Ribeiro (6 földum heimsmeistara og tvöföldum ADCC meistara) sem er hátt í 20kg þyngri en Gunnar en Xande hafnaði í þriðja sæti í -99kg flokknum og í þriðja sæti í opna flokknum.
Mótinu hafa verið gerð ágæt skil í fjölmiðlum og hér má finna góða umfjöllun um gengi Gunnars á Mjölnisvefnum. Læt það duga
Hér fyrir neðan má svo sjá viðtal (á ensku) tekið við Gunnar eftir mótið.
Íþróttir | Breytt 12.10.2011 kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2011 | 15:46
Árni Ísaks tapaði í Jórdaníu
Vinur okkar Árni Ísaksson háði harða rimmu í fyrrakvöld um veltivigtarbeltið hjá Cage Warriors en andstæðingur hans var hinn franski Gael Grimaud. Bardaginn fór fram í Amman í Jórdaníu og var John Kavanagh (þjálfari Gunna og Árna á Írlandi) í horninu hjá Árna en John var með þrjá aðra keppendur á cardinu þetta kvöld. Því miður fyrir okkur hér heima þá bar Frakkinn sigurorð af okkar manni en Árni barðist til síðasta blóðdropa og landi og þjóð til sóma.
Árni byrjaði ágætlega, náði tvöföldum underhook á Frakkann og felldi hann í gólfið og sótti stíft á hann fyrri helming fyrstu lotunnar. En Gael var seigur og náði að snúa taflinu sér í hag og þegar Árni reyndi fótalás sem mistókst nýtti Frakkinn sér það og náði að lokum bakinu á Árna. Þar setti hann inn svokallaðan body triangle en Árni varðist þó vel. Að lokum náði okkar maður að losa Gael af bakinu á sér og báðir keppendur voru standandi þegar lotunni lauk. Önnur lota hófst því miður ekki vel fyrir “Ísvíkinginn”. Eftir að keppendur höfðu skipst á höggum fór bardaginn í gólfið og þar náði Frakkinn aftur yfirhöndinni, ýmist með því að ná bakinu á Árna eða með mount. Frakkinn lét höggin dynja á okkar manni sem þó gaf sig ekki en þegar tæp mínúta var eftir af lotunni taldi Marc Goddard dómari nóg komið og stöðvaði bardagann. Frakkinn sigraði því Árna á tæknilegu rothöggi (TKO). Árni var að sjálfsögðu svekktur með tapið en svona er sportið og Árni mun læra af þessum ósigri og koma sterkari til baka. Hann hefur áður mætt mótvindi á sínum ferli og alltaf komið betri til baka eftir áfall. Svo verður einnig nú.
Þess má geta að vinkona okkar Aisling Daly, sem oft hefur komið til Íslands og æft hjá Mjölni, vann góðan sigur á cardinu á aðeins 20 sekúndum með armbar og Conor McGregor sem líka æfir hjá John Kavanagh sigraði á TKO í fyrstu lotu. Cathal Pendred gerði jafntefli við Danny Mitchell, þann sama og Gunnar sigraði í Manchester í fyrra.
Bardaga Árna frá því í fyrradag má sjá hér að neðan.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2011 | 02:13
Video frá námskeiði sem Gunnar hélt í Manchester
Nýlega birtist á vefnum video sem tekið var þegar Gunnar hélt námskeið í klúbbnum hjá Karl Tanswell í Manchester í Englandi í maí síðastliðnum. Þetta er mjög flott video með vangaveltum Gunnars um ýmis atriði sem snúa að andlegu hliðinni á íþróttinni og auðvitað tæknilegum atriðum. Einnig er þarna að finna nokkra viðtalsbúta við Karl Tanswell. Fyrir áhugasama þá birti BJJ Hacks stutta umfjöllun um Gunnar og þetta video sem þeir kölluðu Gunnar Nelson: Getting Good and Enjoying the Process. Videoið má svo sjá hér að neðan.
Gunnar Nelson Seminar 2011 from stuart cooper on Vimeo.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 02:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2011 | 01:57
Gunnari boðinn þátttaka á ADCC 2011
Það er gaman að geta staðfest að Gunnari hefur verið boðinn þátttaka á ADCC 2011 sem fer fram á slóðum Hróa hattar í Nottingham á Englandi dagana 24.-25. september næstkomandi. Eins og margir vita er ADCC öflugasta og erfiðasta uppgjafarglímumót heims en það er haldið annað hvert ár víðs vegar um heiminn og af flestum talið óopinbert heimsmeistaramót í uppgjafarglímu (submission grappling).
Gunnar mun keppa í -77kg flokki en hann tók einnig þátt í síðasta ADCC móti sem fór fram í Barcelona 2009. Þá þurfti hann að keppa í -88kg flokki (þó hann væri eins um 80kg) þar sem -77kg flokkurinn var fullsetinn. Keppendur öðlast þátttökurétt á mótinu á tvennskonar hátt. Annars vegar með því að sigra sinn þyngdarflokk í undankeppni hverrar heimsálfu fyrir sig eða með því að fá boð mótshaldara (sem þykir mikill heiður). Gunnar hlaut einnig boð á keppnina fyrir tveimur árum og var þá fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt í þessari gríðarlega erfiðu keppni og vakti mikla athygli með því að lenda í fjórða sæti í opnum flokki m.a. með fræknum sigrum á Jeff Monson og David Avellan.
Undankeppnin í Evrópu fer fram í Turku í Finnlandi þann 21. maí nk. en 5 Íslendingar munu taka þátt í henni að þessu sinni og freista þess að vinna þátttökurétt á ADCC 2011 í Englandi. Af þessum 5 eru 4 úr keppnisliði Mjölnis en það eru þau Þráinn Kolbeinsson (-99), Sighvatur Magnús Helgason (-88), Axel Kristinsson (-66) og Auður Olga Skúladóttir (+60). Þá mun Arnar Freyr Vigfússon (-77) frá Combat Gym einnig keppa í undankeppninni.
Gunnar dvelur núna í Manchester og Dublin við æfingar en kemur heim 18. maí og stefnir síðan að því að fara til New York og víðar til frekari undirbúnings fyrir keppnina í lok september. Fyrir þá sem hafa áhuga þá er hér myndaalbúm frá ADCC 2009.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 02:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2011 | 09:57
Gunni og Stebbi studdu gott málefni
Gunnar mætti á góðgerðarviku Verzló til að glíma við Stefán Geir og safna áheitum til styrktar börnum í Úganda. Mikill fjöldi mætti til að horfa á Mjölniskappanna takast á. Rétt er að benda á að Jón Viðar tók ekki síðra video af glímunum en það sem birtist á mbl.is. Á videoinu sem hann tók upp má líka sjá aukaglímuna sem ekki er á mbl. Hér er upptaka Jóns Viðars:
Gunnar Nelson VS Stefán Geir í Versló (2011) from Mjolnir MMA on Vimeo.
|
Gunnar Nelson lúskrar á Verslingi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2011 | 18:39
Frábær árangur keppenda frá Mjölni á Danish Open
Íslenskir keppendur úr Mjölni hafa heldur betur verið að gera garðinn frægan undanfarið. Um síðustu helgi flugu nokkrir keppendur frá Mjölni til Kaupmannahafnar til þátttöku á Opna danska meistaramótinu. Skemmst er frá því að segja að Íslendingarnir tryggðu sér 9 verðlaun á mótinu. 4 gull, 1 silfur og 4 brons.
Sighvatur Helgason kom sá og sigraði sigraði í -88kg flokki í fjólubláu belti og opna flokkinn (fjólublátt belti). Sighvatur náði uppgjafartaki á alla sem hann keppti við nema Mjölnismanninn Þráinn Kolbeinsson, en mættust þeir í undanúrslitum í opna flokknum. Sigurjón Viðar Svarvarsson náði gulli í +100 (blátt belti) og í úrslitum sigraði hann keppanda sem var hátt í 40kg þyngri en hann sjálfur. Þráinn Kolbeinsson sigraði -94kg flokkinn og var í þriðja sæti í opna flokknum (fjólblátt belti). Bjarni Kristjánsson vann til silfurverðlauna -94kg (blátt belti) og brons í opna flokknum. Auður Olga Skúladóttir vann bronsið í -64kg (fjólublátt). Loks nældi Guðmundur Víglundsson sér í brons í sínum þyngdarflokki í hvítbeltaflokki 30-35 ára keppenda.
Tæpur mánuður er síðan annar keppandi frá Mjölni, Jósep Valur Guðlaugsson, vann gullið á Evrópumeistaramótinu í 82kg flokki blábeltinga 30-35 ára.
Skyldi einhver vera að velta fyrir sér af hverju Gunnar er ekki meðal keppenda þá hefur hann tekið sér frí frá keppni fyrri hluta ársins og jafnvel fram á haust.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2011 | 17:44
Gunnar á lista Sherdog.com yfir 10 efnilegustu
Gunnar er á lista stærsta MMA vefs í heimi, Sherdog.com, yfir þá 10 bardagaíþróttamenn í Evrópu sem fréttamenn vefsins telja að menn ættu helst að hafa augun opin fyrir 2011 (10 Europeans to Watch). Í greininni segir m.a. að Gunnar sé "perhaps the truest bona fide elite prospect on the European scene today." Þá segir í lok greinarinnar að "Nelson is the total package, and the only things that will hold him back in 2011 are opponents not wanting to face him, or a decision to focus on ADCC 2011."
Þess má geta að Gunnar hefur hugsað sér að keppa ekkert fyrra hluta þetta árs, í það minnsta, heldur einbeita sér að æfingum og ákveðnum hlutum í "vopnabúri" sínu. Hann hefur ekki enn tekið neinar ákvarðanir um það hvað gerist í haust en gerir ráð fyrir að keppa ekki mikið á þessu ári í heildina heldur stefna meira á árið 2012 til þess.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2011 | 23:09
Gunnar valinn "Maður fólksins" á sport.is
Gunnar var valinn "maður fólksins 2010" á íþróttavefnum sport.is en hann fékk flest atkvæði lesenda vefsins um íþróttamanna ársins. Atkvæði þeirra giltu helming á móti atkvæðum fréttamanna vefsins sem kusu Aron Pálma íþróttamann ársins. Fyrir kjörið hlaut Gunnar bikar viðurkenningarskjal og bókina Íslensk knattspyrna 2010, sem okkur sem þekkjum hann finnst frekar fyndið því við vitum að hann er hvorki lestrarhestur á bækur né hefur nokkurn einasta áhuga á fótbolta 
Við stuðningsmenn Gunnars og bardagaíþrótta á Íslandi þökkum lesendum sport.is fyrir kjörið.
Hér er videoviðtal við Gunnar sem tekið var í dag af þessu tilefni.
Myndin hér til hliðar er tekin af frétt á sport.is
Íþróttir | Breytt 4.1.2011 kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.12.2010 | 22:28
Gunnar í Nærmynd
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Combat - bardagaíþróttir
Tenglar
MMA vefir
Áhugaverðar síður um bardagaíþróttir
- Gunnar Nelson in English Gunnar's Nelson official website
- Fighters Only Magazine Stærsta MMA tímarrit í Evrópu
- UFC Ultimate Fighting Championship
- MMA Weekly Fréttasíða um MMA
- Sherdog MMA gagnagrunnur, fréttir o.fl.
- MMA Universe MMA gagnagrunnur, fréttir o.fl.
- Mjölnir - SBG Iceland Bardagaíþróttafélagið Mjölnir
- SBG Ireland Gymið hjá John Kavanagh
- Renzo Gracie Renzo Gracie Academy
- Gracie Magazine Vinsælasta BJJ tímarit í heimi
RSS-straumar
MMA fréttir
Mjölnir
Augnablik - sæki gögn...
Fighters Only Magazine
Augnablik - sæki gögn...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 173994
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar










